Jón Hilmar Kárason
Það á aldrei að taka viðtal við einhvern sem er ný byrjaður að læra á gítar. Það er allt skemmtilegt.
Það á aldrei að taka viðtal við einhvern sem er nýbúin að opna veitingastað. Viðtökurnar eru langt fram úr væntingum.
Ekki taka viðtal við söngvarann sem er nýhættur að drekka. Lífið hefur bara aldrei verið betra.
Það á aldrei að taka viðtal við einhvern sem er nýhættur að nota símann sinn eins og hann gerði áður. Hann les bækur á hverju kvöldi og kveikir varla á sjónvarpinu.
Tökum viðtal við þau sem hættu eða byrjuðu fyrir tveim árum síðan. Annað er bara ekki tekið með.