Jon Hilmar Karason
Fyrsta sjónvarpsviðtalið sem ég tók á ævinni var við Robben Ford. Minn uppáhalds gítarleikara, reyndar ásamt mörgum öðrum. Ég tók viðtalið eftir masterklass sem hann hélt í FÍH fyrir ekki svo marga. Ég er búin að vera í Félagi Íslenskra Hljóðfæraleikara í tugi ára og ég furðaði mig á því að við sem værum í félaginu hefðum ekki haft veður af þessum masterklass. Ég spurði einn af forkólfum félagsins hvernig stæði á því að félagsmenn hefðu ekki vitað af þessu. Svarið var mjög einfalt og hefur setið í mér. Ég passa mig á að hafa aldrei þetta viðhorf.
Svarið var "Það er ekki í mínum verkahring".
Þegar þú ert ráðin við að spila í brúðkaupi þá er það í þinum verkahring að láta allt vera fullkomið. Ekki bara tónlistarfluttninginn. Þú lagar dúkinn sem er krummpaður við hliðina á sviðinu, þú réttir af blómvöndinn sem datt á hliðina.
Það er í okkar verkahring að láta allt vera fullkomið. Sama hvað við erum að gera.