Jon Hilmar Karason

Jon Karason, August 8 2026

Segðu hæ

Það er ýmislegt skemmtilegt sem getur gerst ef maður segir hæ.  Þegar ég er á Seyðisfirði þá er fólk frá öllum heimshornum allsstaðar.  Bæði þau sem vinna hér og auðvitað gestirnir.  Það getur verið gaman að brosa til fólksins á næsta borði og segja hæ.

Ég sagði hæ við konu sem sá mig spila á Martin gítar.  Hún sagði við mig að hún gæti kynnt mig fyrir Chris Martin sem væri stjórnarformaður hjá Martin gítarframleiðandanum.  Þau væru góðir vinir.

Ég sagði hæ við eldir mann um daginn sem sagði mér að hann ætti Martin frá 1931(minnir mig)  Hann sagði mér einnig að þessi gítar hefði verið í eigu Norman Blake sem hélt á þessum sama gítar á einhverjum plötuumslögum.

Ég sagði hæ við fólkið á næsta borði um daginn og bauð þeim á tónleika.  Ég gat búið til óvænta upplifun fyrir fólk sem var að ferðast um landið og mun sennilega aldrei gleyma heimsókninni.  Allt óvænt er svo skemmtilegt á ferðalögum.

Það versta sem gerist er að það kemur bara hæ á móti og ekkert meir.  En prufaðu að segja hæ.  Það er aldrei að vita hvað gerist.

Written by

Jon Karason

Previous Ef þú þarft að biðja.