Jon Hilmar Karason
Það er svolítið langt síðan ég skrifaði hér inn síðast. Það er líka svolítið síðan að ég sendi út email á póstlistann minn. Það er svolítið síðan að ég tók inn nýjan nemanda í netkennsluna. Það er svolítið síðan að ég gerði eitthvað sem storkaði mér verulega.
Ég hef verið duglegur við að gera hluti sem storka mér síðustu 10-15 ár. Ég gerði það jú einstaka sinnum fyrir það og einhverstaðar verður maður að byrja. Þetta eru líka árin sem hafa hjálpað mér að vaxa og komast á þann stað sem ég er á í dag. Að gera ómögulega hluti er eina leiðin fram á við og upp á við.
Kannski er komin tími á að gera eitthvað ómögulegt.